Kannski ég byrji bara að blogga aftur, farið að leiðast á fésinu :))))

Margt hefur á daga drifið síðan ég bloggaði hér síðast um GBSið og hvernig ég hef dafnað. Mér skilst að ég sé bara heppin að vera á fótum miðað við allt. Enda er ég endalaust þakklát þeim sem studdu við bakið á mér á meðan ég var að koma mér upp úr stólnum, og standa enn diggann vörð um mig. Ég hefði ekki getað þetta án þeirra, þá á ég við fjölskylduna mína og vini. Kertagerðin blómstrar sem aldrei áður og við Vigga og vinkona hennar vorum á haus allan nóvember og fram undir 20 desember, og ég sem hélt að þetta yriði svipað og í fyrra Grin, en það var meira. Og alltaf er ég hissa hversu vel blessuð kertin seljast, á kannski að vera búin að fatta að þau eru bara nokkuð góð hjá mérSmile.

Ég er útskrifuð frá Borgaspítalanum endanlega og þarf ekki þangað inn nema ef einhver annar í familíunni þarf á aðstoð þeirra að halda. Steini minn þurfti á þeim að halda í haust og þá var ósköp gott að vera í öruggum höndum staffsins á Borgó. 

Ég hef verið þokkalega dugleg við að hreyfa mig, en aldrei nóg, svo nú á að taka á þessu öllu og skella sér í einkaþjálfun hjá tveim dömum sem eru að útskrifast frá Íþróttaháskólanum.  Þær eru með eitt stykki rannsókn á konum á Selfossi frá 35 - 55 ára aldri ég benti þeim á að ég væri kannski ekki dæmigerð kona þ.e. að ég er með ýmsar sérþarfir t.d get ekki hlaupið, gengur illa að ná hjartslætti upp í brennslu og fleira í þeim dúr, en ég held ég hafi litið út sem spennandi verkefni þegar ég var að reyna að telja úr þeim kjarkinn LoL. Svo nú er það bara að bretta upp ermar og fara í keyrslu. Bara gaman Smile sjáumst fljótlega hér og þá verð ég með meira uppdeit á mér og mínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá að frænka er byrjuð hér aftur, miklu betra og skemmtilegra en hér er að vísu enginn búleikur??   Skilaðu kveðjum í kotið með knúsi og kossum. Heyrumst stóri frændi.

Jóhann Úlfars (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband