Leita í fréttum mbl.is
Embla

Já það fækkar mótmælendum íslands

en það segir svo sem ekki allt, margir eiga kannski ekki gott með að komast í borg óttans til að mótmæla. En vonandi verðu haldið áfram að mótmæla og gera mönnum grein fyrir að við erum öll búin að fá upp í kok af þessu óreiðutali, og finnst við ekki eiga borga fyrir aðra. Lítið á hvað Englendingar gera á Mön þar sem þeir voru með útibú, ekki greiddu þeir innstæðurnar fyrir fólkið sem átti peninga í breskum bönkum á Mön. En svo eigum við að greiða innstæður sem einhver íslenskur banki sem var með starfsemi á Englandi og fór í þrot. sé ekki samhengið í þessu né heldur siðfræðina. En vonandi tekur Forseti vel í þetta allt og lokar á lögin, og þar með er komin þjóðaratkvæðagreiðsla sem ég er svo sem ekkert viss um að endi vel. en þá er það við sem getum kennt okkur sjálfum um en ekki mönnunum sem við kusum til að sjá um þessi ´mál.
mbl.is Mótmæli á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vinur minn lét sér ekki muna um að koma alla leið norður úr Þingeyjarsýslum til þess að mótmæla.

spritti (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 03:23

2 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Já það er gott mál þegar landsbyggðin mætir, en það sem okkur vantar er mótmæli á borð við það sem við sjáum í Frakklandi, þar sem bændur mæta með skítadreifaranna og fiskimenn koma með slorið, þá er komnar tvær grunngreinar sem hafa byggt upp landið og það myndi kannski skiljast betur. En að berja potta og pönnur þó það geri líka sitt.

Helga Auðunsdóttir, 31.12.2009 kl. 03:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Helga í Töfraljósum

Helga Auðunsdóttir
Helga Auðunsdóttir

Ég er að jafna mig eftir Guillain-Barré Syndrome og skrifa lítið eitt um það hér með öðru

Nýtt líf

Ýmislegt um aðgerð og áframhald eftir aðgerð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband