27.5.2012 | 10:13
já varð aðeins vör við þetta
|
Bilun í netkerfi Símans |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
13.2.2012 | 02:59
Nei ekki nýtt kúakyn!!!
Mér er nokk sama hvað menn segja um að fá afurðarmeiri kýr til landsins, það er eitthvað sem við megum ekki láta gerast. fyrir það fyrsta þá bera byggingarnar okkar þessar kýr þar sem þær eru töluvert stærri en kýrnar okkar. svo er ekki nóg með það þær sökkva hreinlega í jarðveginn og yrðu því svona inni dýr, og við viljum það svo gjarnan að það verðið verksmiðjurekin kúabú!, fáeinir bændur vel skuldsetnir vegna stórra bygginga og svo þyrfti stóraukin olíu og innflutning á allskonar stórvirkum heyvinnuvélum til að heyja frá vori, því ekki færu kýrnar út.. æ gleymdi einu, þær þurfa miklu meira kjarnfóður til að framleiða líterinn en okkar kýr.. ææ meiri innflutningur. ég hef aldrei séð neitt jákvætt við þennan málflutning og munið við fluttum inn holdagripi sem áttu að vera til kjötframleiðslu en svo kom á daginn að okkar gripir stóðu þeim alveg á sporði þegar var farið að fóðra þá rétt.
En verndum hið íslenska kúakyn með öllum ráðum til lengri tíma litið þá er það farsælast.
|
Vilja nýtt kúakyn til Íslands |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.8.2011 | 17:29
Þegar stjórnsemin og skattar verða of miklir
|
Eldri borgarar taka út peninga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
7.3.2011 | 22:14
Bolludagurinn :)) ogfl.
Já við vorum með smá kaffi hérna heima, fyrir heimilisfólkið og þá sem komust í heimsókn. Þetta var gömul hefð á mínu heimili að hafa Bollukaffið á sunnudeginum, og ég reyni að halda í þá hefð en er ekki alltaf dugleg við það. Svo man ég að mamma var alltaf að atast í Jónínu systur sinni hvor gerði stærri bollur, ég man eftir því að mamma setti lyftiduft í bollurnar til að vera 100% örugg um að vera með stærri bollur.
Ég skrapp í hjartaómskoðun og var spurð í þaula um eitt og annað og hann var alveg hissa hvað væri verið að senda manneskju sem væri á fullu í heilsurækt og göngu í hjartaómun, ef eitthvað væri að þá gæti ég ekki verið í þessu.
Annars er allt gott af okkur að frétta, ég þarf reyndar að vera í Reykjavíkinni fimmtudag og föstudag, vona að það komi allt vel út, ég segi frá því seinna :)
Mér hefur gengið vel að halda út í reykingapásunni sem ég er í :)))) þarf bara að eiga venjulegt tyggjó þá er ég góð :))) hef ekki notað neitt af nikótín meðulunum, enda nenni ég ekki að fara í gegnum það fráhvarf líka.
Ég er að vona að þegar nær dregur vori þá geti ég farið að ganga áleiðis upp Ingólfsfjall :))) ég er að reyna að styrkja fæturna vel og vandlega svo ég geti haldið út smá tíma án æfinga í sumar :) Annars keypti ég mér kort í ræktinni hérna í Selfosslauginni og þá get ég notað það á fleiri stöðum um landið og skroppið í ræktina þó ég sé ekki á Selfossi :)) það gerir ótrúlega mikið fyrir mig að vera í svolítið harðri þjálfun á fæturna, til að fá þær til að finna og verða næmari á að ég get gert meira en bara að ganga. Vinstri fóturinn er alltaf að stríða mér, ég sagði nú við Viggu sem var að deyja úr harðsperrum í fótunum að ég öfundaði hana, ef ég geri of mikið þá fæ ég í mesta lagi krampa eða sinadrátt, en harðsperrur hef ég ekki fundið síðan ég lamaðist. Sumum finnst ég örugglega biluð, en þetta er afskaplega skrítið að geta ekki sagt sér hvaða vöðvar eru að vinna, ég þarf að þreifa til að vita það. :))) En svona er þetta ennþá 4 árum eftir að blessað GBSið mitt.
1.2.2011 | 19:48
Jæja.. best að sitja eitthvað niður á blað.
Já sko.. sumir segja loksins, en ég segi einn dagur í einu, þannig díla ég við það að hætta að reykja, Jói minn ég hætti á afmælisdaginn þinn, ég ætlaði að hætta 6.2 en ég tímdi ekki að kaupa mér sígarettur:))) gamla nískan kom upp í mér, lá við að ég keypti mér til að vefja sjálf en ég sló á puttana því það þýðir alltaf að maður fer út í að kaupa tilbúnar sígarettur.
En hvað um það, ég er byrjuð í einkaþjálfun og gengur bara nokkuð vel þó ég geti ekki hlaupið á bretti. Ég hjóla þeim mun meira. Ágætt að láta sparka aðeins í sig til að koma sér á stað og svo er þetta gott því það tekur tíma frá því að væflast um og eiga í erfiðleikum hvað eigi að gera með puttanna :)). Svo er ég farin að geta labbað meira úti svo við Kolka njótum þess að fara í göngutúra:).
Náði Steina í einn göngutúr, en hann sagði þegar ég hætti að reykja þá færi hann að hreyfa sig.. ef hann gerir það ekki nú þá verð ég bara að byrja aftur!!! að reykja jókur :)))))
Reyndar er ég skíthrædd við að hætta og verð sjálfsagt að fara heimsækja gamla lungnalækninn minn og fá lyfin mín bæta aðeins í safnið, ætla samt að sjá til í nokkrar vikur og sjá hvort einkennin af heysóttinni aukist eða hvort ég geti funkerað án lyfjanna ef ég þarf ekki að vera að ryksuga og þurka af. En spurning hvort að húsmóður sé boðið upp á svoleiðis lúxus.
En nóg af þessu væli. Ég er í fullu fjöri eins og tek því sem að höndum ber þegar það bankar upp á:).
11.1.2011 | 23:26
Kannski ég byrji bara að blogga aftur, farið að leiðast á fésinu :))))
Margt hefur á daga drifið síðan ég bloggaði hér síðast um GBSið og hvernig ég hef dafnað. Mér skilst að ég sé bara heppin að vera á fótum miðað við allt. Enda er ég endalaust þakklát þeim sem studdu við bakið á mér á meðan ég var að koma mér upp úr stólnum, og standa enn diggann vörð um mig. Ég hefði ekki getað þetta án þeirra, þá á ég við fjölskylduna mína og vini. Kertagerðin blómstrar sem aldrei áður og við Vigga og vinkona hennar vorum á haus allan nóvember og fram undir 20 desember, og ég sem hélt að þetta yriði svipað og í fyrra
, en það var meira. Og alltaf er ég hissa hversu vel blessuð kertin seljast, á kannski að vera búin að fatta að þau eru bara nokkuð góð hjá mér
.
Ég er útskrifuð frá Borgaspítalanum endanlega og þarf ekki þangað inn nema ef einhver annar í familíunni þarf á aðstoð þeirra að halda. Steini minn þurfti á þeim að halda í haust og þá var ósköp gott að vera í öruggum höndum staffsins á Borgó.
Ég hef verið þokkalega dugleg við að hreyfa mig, en aldrei nóg, svo nú á að taka á þessu öllu og skella sér í einkaþjálfun hjá tveim dömum sem eru að útskrifast frá Íþróttaháskólanum. Þær eru með eitt stykki rannsókn á konum á Selfossi frá 35 - 55 ára aldri ég benti þeim á að ég væri kannski ekki dæmigerð kona þ.e. að ég er með ýmsar sérþarfir t.d get ekki hlaupið, gengur illa að ná hjartslætti upp í brennslu og fleira í þeim dúr, en ég held ég hafi litið út sem spennandi verkefni þegar ég var að reyna að telja úr þeim kjarkinn
. Svo nú er það bara að bretta upp ermar og fara í keyrslu. Bara gaman
sjáumst fljótlega hér og þá verð ég með meira uppdeit á mér og mínum.
11.1.2011 | 19:56
Verður þetta ekki bara minnisvarði um stóriðju á Íslandi.
|
Sala á Elkem breytir engu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
2.10.2010 | 08:24
Það var og ...
|
Ekkert sett í Lífeyrissjóð bænda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
3.4.2010 | 10:24
Hér er allt á fullu :))
Svo virðist sem kertagerðin fari í lítið frí þetta sumarið. Það er pantað úr öllum áttum og virðist sem allir ætli að halda sig við að kaupa íslenskt þetta árið :) sem er vissulega gott, vildi óska að þetta hefði verið hugsunarhátturinn alltaf. Að við værum stolt af því sem við framleiddum í landinu en ekki með endalausa minnimáttarkennd gagnvart því að kaup það sem íslenskt er. Í dag ættum við frábæra húsgagnasmiði og fleiri flotta iðnaðarmenn ef við hefðum ekki talið að það væri betra að versla frá útlöndum í gegnum árin. En sök bítur sekan, og við sitjum því uppi með atvinnuleysi og kreppu vegna græðginnar sem við að mörgu leiti sköpuðum sjálf. Já það kom að því að við yrðum að leita á innri markað til að fá vörur sem eru á verði sem við ráðum við.
En hvað um það, nú þegar gýs á Fimmvörðuhálsi og allir flykkjast þangað eins og enginn sé morgundagurinn, þá verðum mér oft hugsi. Ég er ekki ein af þeim sem hef farið og skoðað þessa dýrð, enda finnst mér þetta ekkert sérstaklega skemmtilegt að vita af þessu í næstu sýslu. Kannski af því að við hér á Suðurlandi hræðumst líka að Katla fari á stjá og vitandi að þá verður hræðilegt ástand í landinu, þó mest og best í kringum Kötlu gömlu. Þó svo að allir mælar séu til staðar treysti ég þeim ekki, því hver segir hvernig gos fer á stað, þeir vissu nú ekki af nýju sprungunni, allir okkar fræðingar. Já náttúran er svo margbreytileg og þeir sem hafa kynnst henni vita að það er aldrei að vita hvað gerist næst.
jæja best að hætta þessu og fara gera sig klára á Gónhól en þar erum við í dag, frá kl. 13 - 17 , endilega kíkið þar er margt að skoða og sjá :)))
Bloggvinir
- Þorsteinn Gunnarsson
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Kristín Jóna Jónsdóttir
- Sólrún
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda
- Jónína Dúadóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir
- Tína
- Solveig Pálmadóttir
- Guðjón Bergmann
- Helga skjol
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Birna Guðmundsdóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Tómas Þóroddsson
- gudni.is
- Eyþór Arnalds
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Mér finnst ...
- Sigríður Jónsdóttir
- Helguráð
- hofy sig
- Dagrún Þórný Marínardóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Perla
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Vilborg Auðuns
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna S. Árnadóttir
- Arna Stjarna
- Ásta Björk Hermannsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Eiríkur Harðarson
- Græna netið
- Guðbjörn Jónsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Magnús Vignir Árnason
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Stafnhús ehf
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Ágúst 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Október 2006
Nýtt líf
Ýmislegt um aðgerð og áframhald eftir aðgerð
-
Nýtt líf
Fyrir og eftir -
Nýtt líf
Gastric Bypass Surgery
Póstlisti og Vinsæl blog
Vinsældarlistinn
hér eru helstu bloggarar landsins með síðurnar sínar.
Póstlisti
Hér getur þú skráð þig á póstlista Töfraljósa
Tenglar
Fjölskylda og vinir
Mínir nánustu
- Stóra Stelpan mín Hér er þessi elska að blogga um sig og sína
- Mið Stelpan Mín Hér eru hennar hugrenningar um lífið og tilveruna
- Hér eru barnabörnin Þessar elskur eru svo duglegar
- Urðarbrunnur - vefverslun Yngsta dóttlan er að sýsla við þetta
- Ýmir - Boxerinn okkar
- Skottan
Fréttavefir
- Fréttavefur Suðurlands Fréttir af mönnum og málefnum á Suðurlandi
Töfraljós - Ilmkertagerð
- Töfraljós - kertamyndir Hér eru myndir af kertunum
Af mbl.is
Íþróttir
- Young tryggði Hodgson fyrsta sigurinn
- Óvíst með þátttöku Sölva Geirs
- Brúðhjón á æfingu franska landsliðsins
- Ólafía með þriggja högga forystu
- Spánn vann Serbíu - Portúgal skoraði ekki
- Sviss vann Þýskaland í átta marka leik
- Úrslitaleikurinn úr greipum AG í lokin
- Sarah Blake í hóp ólympíufara
- Írland og Pólland með sigra
- Tvö töp gegn San Marínó
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 23
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 52041
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 19
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar










