Færsluflokkur: Bloggar

Töfraljós - Ilmkertagerð - Kertagerðin komin vel á skrið

frankincenseHér eru Frankincense kerti, yfirleitt er þessi ilmur í reykelsum sem notuð eru í katólskum kirkjum.

Þetta er sannkallaður jólailmur.

 

 

 

sjavardraumurHér er svo sjávardraumurinn, sá allra vinsælasti ilmur sem við höfum verið með.

 

En kíkið endilega á síðuna og skoðið vel og vandlega!

www.tofraljos.com


Hver verður mín saga ???

ég fór á Lansann í gær að hitta þá frægu magaskurðameistara. og ég er komin í prógramm hjá þeim stúlkum á Lansanum. þ.e. hitta næringarfræðing og vigtun á tveggja vikna fresti. Nú gengur þetta upp hjá mér er búin að bíða eftir þessu síðan ég veiktist að geta klárað prógrammið sem ég var í þá. Var komin með skurðardag en of seint ég komst ekki lá víst flöt uppá Borgó.

Öll þessi skelfingar umræða sem spannst út af blaðagreininni í gær, var bara til að setja glott á feisið á mér. Ég hef verið að spjalla við fólk sem hefur verið í svipaðri stöðu og ég, farið í þessa aðgerð og þeim líður vel, hamingjan er ekki með í þessum pakka hjá meisturunum, hún er eitthvað sem þú skapar þér sjálfur. Og ég komst í gegnum þetta ár án þess að leggjast á hliðina og segja mig úr samskiptum við menn og mýs. Svo það getur ekki annað en farið upp á við í þessum málum sérstaklega ef ég næ af mér mínum aukakílóum þá get ég kannski bara farið að dansa.. og það er sko ekki slæmt.


Fór í tékk á Reykjalundi

Jamm skrapp "heim" í gær. Það var ósköp gott að hitta fólkið mitt upp á deild, hafði samt ekki mikinn tíma, Steini beið úti í bíl á meðan ég var í tékkinu en það tók 1 1/2 tíma. Ég var bara nokkuð ánægð með það og ég hafði styrkst töluvert í fótum, en skynið er ekki gott. So what ég geng og það er fyrir mestu. Ég má núna keyra bíl YESSSS en bara eins og ég treysti mér. Enda veit ég ef ég er mjög dofinn þá bara get ég það ekki, en að hafa leyfið er yndislegt og ég geri það sem ég vil. Þau voru ánægð að heyra að ég væri farin að gera kerti aftur, en kannski ekki með það að ég væri að stressa mig á því að eiga nóg. En hvað um það, þetta bara fylgir og ég verð bara fara komast inn í mína rútínu. jæja nóg í bili er að fara keyra englanna mína í leikskólan.

Stjörnuspá

NautNaut: Ekkert gerist án þín þessa dagana. Þú ert í mjög áhugaverðum aðstæðum sem verður lengi talað um. Vitandi það, bregst þér ekki bogalistin
Nautið alltaf í góðum málum :)

Evran er málið

Líst vel á þessa skoðanakönnun og vona að þeir háu herrar sem stjórna landinu fari nú að taka við sér í þessum málum
mbl.is Meirihluti þjóðarinnar hlynntur því að taka upp evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja...

Hræðsluáróðurinn farinn í gang aftur eða kannski hætti hann aldrei. Bush verður að hafa einhvern til að atast út í.
mbl.is CIA varar við nýjum árásum Al-Qaeda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að vita eða hvað....


Staðreyndir sem gott er að vita

Ef þú myndir öskra í 8 ár 7 mánuði og 6 daga myndir þú búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla.
Mér sýnist varla taka því

Ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár 9 mánuði myndast gas sem jafngildir krafti atómsprengju.
Þetta er betra

Fullnæging svína stendur í 30 mínútur. Í næsta lífi vill ég vera svín
Hvernig finna menn þetta út og afhverju!!!.

Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma.
ég er ekki en búina að komast yfir þetta með svínin og ekki prufa þetta með hausinn heima,,, kannski í vinnunni

Menn og höfrungar eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar.
(Nú vitum við af hverju Flipper er alltaf svona glaður) (og svín fá 30 mínútna fullnægingar) ( virðist ekki sanngjarnt)

Sterkasti vöðvin í líkamanum er tungan.
(Hmmmmmmmmm........)

Rétthent fólk lifir að meðaltali 9 árum lengur en örvhentir.
(ef þú ert jafnvígur á báða deilir maður þá með 2?)

Maurar geta lyft 50 faldri þyngd sinni,togað 30 falda þyngd sína og þeir falla alltaf á hægri hliðina þegar þeir verða drukknir.
(Eftir að hafa drukkið litlar flöskur af...??) (greiddu skattgreiðendur fyrir þessa rannsókn)(og hvað með það þótt svín fái 30 mínútna fullnægingar!)

Ísbirnir eru örvhentir.
(hver vissi það..?Hverjum er ekki sama...?hvernig fundu menn það út, spurðu þá? - og táknar það að þeir lifa skemur?)

Leirgedda (það er fiskur) er með 27,000 bragðkirtla.
(hvað í ósköpunum getur verið svona bragðgott neðst í vatninu)

Flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það svipað og maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll.
(30 mínútur ímyndaðu þér og af hverju svín)

Kakkalakki getur lifað í 9 daga án höfuðs áður enn hann sveltur til bana. (Creepy)
Sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag(ég vill samt verða svín í næst lífi .. gæði fram yfir magn...)

Fiðrildi eru með braglaukana á fótunum
(ojjjjjjj) (það er næstum eins slæmt og Leirgeddan)

Auga strútsins er stærra en heilinn
(Ég þekki svoleiðis fólk.)

Krossfiskar hafa engan heila.
(Ég þekki líka svoleiðis fólk.)

Eftir að hafa lesið þetta er það eina sem ég get sagt er
Svín eru heppinn.

Brosið á fimmtudagsmorgni

Ella var á golfæfingu dag einn er hún hitti illa við átjándu holu og golfkúlan lenti beint inni í runna. Þegar hún ætlaði að fara að skríða eftir henni sá hún hvar lítill  sætur froskur var fastur í gildru , um leið og hún losaði hann sagði froskurinn: 014330blNú færð þú þrjár óskir uppfylltar en ég verð að segja þér frá því að  það sem þú óskar þér fær maðurinn þinn tífalt meira af. Ella sem var mjög glöð og hugsaði með sér að það yrði allt í lagi. Fyrsta ósk hennar var að hún yrði fallegasta kona heims. Froskurinn varaði hana við og sagði henni að þá yrði maðurinn hennar einning fallegasti maður heims.
Ella hugsaði með sér að það yrði fínt, hún væri hvort sem er fallegasta konan og að maðurinn hennar hefði ekki augun af henni. KAZAM.....
og hún varð að fallegustu konu heims. Annari ósk sinni varði hún í að biðja um að verða ríkasta kona heims. Þá sagði froskurinn : Þá mun maðurinn þinn verða 10 sinnum ríkari en þú. Ella svaraði : það er allt í lagi , allt hans er mitt og allt mitt er hans. KAZAM..... og hún varð ríkasta kona heims. Þá sagði froskurinn: Jæja þá áttu aðeins eina ósk eftir,  hver er hún  ? Ella svaraði: Ég vil fá vægt hjartaáfall.


KONUR ERU KLÁRAR, EKKI ABBAST UPP Á ÞÆR

Var með litlu englanna í gær

Það var það fyrsta sem þau báðu um var að fá pop og djús hjá ömmu. Svo var bíó dagur hjá okkur og við horfðum tvisvar á Tímon og Pumba, svo á Pöddulíf. Svo dönsuðu þau svo fínt fyrir afa og ömmu, þau voru nefnilega að horfa á danskeppnina í sjónvarpinu. Þau voru alveg yndisleg og þau eru svo ánæð að amma skuli vera farin að ganga. IMG_1571

Ég er nú ekki mikil amma í mér en mér finnst voðalega vænt um þessi kríli. Mér er það svo eðlilegt að hafa mikið að börnum í kringum mig að mér finnst alveg eins og ég eigi þau sjálf, enda svo sem fá þau ekki að vaða uppi hjá mér, margir tala um að það sé svo gaman að fá að spilla barnabörnunum ég hef aldrei fundið þá tilfinningu. Kannski er svo stutt á milli þeirra og þess yngsta míns að ég fæ ekki þessa tilfinningu.

 

En hér er sá tjónaði og sú ofvirka, bestustu börn í heiminum.


Tilboð í september hjá Töfraljósum

kíkið á síðuna mína og skoðið tilboðið sem er í gangi núna.ilmjurtir Þar eru ilmjurtir á tilboði meðan birgðir endast og einnig tilboð á vanillukertum. Ef einhver er búin að gleyma því hvaða síða þetta er þá er slóðinn www.tofraljos.com

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband