Fæturnir brenna!

Já þetta er ekkert grín, ég var að reyna að vera ég .. full bjartsýn. Fæturnir mínir eru bara ekki tilbúnir í þetta, hvers vegna.. jú taugarnar eru bara að reyna að tengjast og ég er ekki sátt við að þurfa að taka allt í barnaskrefum en svona er það víst með þennan sjúkdóm GBS að þetta svo fjári langan tíma að jafna sig.

Ég fór út í kertagerð í dag og reyndi að gera kerti, gat byrjað en þegar Steini minn kom að kíkja á mig þá var svo kvalin í fótunum að hann sendi mig inn til að leggja mig. Já þetta verður langur gangur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Helga mín í guðanna bænum farðu varlega svo þú getir örugglega haldið áfram í kertunum, þegar þetta skánar.

En mikið er gott að þú ert komin heim. Kærar kveðjur frá Hólmavíkinni (reyndar ísafirði núna)

Þuríður Signý (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 15:35

2 identicon

Æðislega til hamingju með að vera komin heim Helga mín.  Einhvernvegin kemur það mér ekki á óvart að þú sért að flýta þér meira en gott þykir... fröken þrjóskupúki

Vonandi gengur vel að tækla lífið utan Lundarins.

Knús kella.

Kv. Dagný

Dagný þorkels (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 19:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband