Lagersyndrom og fleira því tengdu
25.10.2006 | 21:52
Jæja nú maður kominn á fullt og steypir eins og vitlaus maður því lagersyndrúmið er alveg að gera útaf við mig að eiga ekki nóg af ÖLLU. Nú ég tók mig til og sendi út fréttabréf um Töfraljós, reyni að gera það í hverjum mánuði en það hefur orðið misbrestur á því síðustu mánuðina. Enda ágæt að vera ekki að bögga fólk of mikið með pósti um ekkert, frekar að senda sjaldnar og hafa eitthvað í því að viti. Dótla mín er að hjálpa mér og ég er að setja hana inn í kertagerðina sjálfa því hún tekur við henni í desember, sko mín ætlar að fá sér smá frí á hábjargræðistímanum Það er svo gaman að kenna henni hún er svo dugleg að tileinka sér góð vinnubrögð og fljót að læra.
Hér er hún í gömlu pökkunaraðstöðunni okkar. Hún er meira en helmingi fljótari í dag að pakka heldur en í þrengslunum sem við vorum í .
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.