Guillain-Barré
17.4.2008 | 18:34
Einhver skildi eftir skilaboð á blogginu hér sem hafði fengið Guillain Barré mig langar svo að komast í samband við þig, ég hef oft verið að hugsa að það væri gott ef við sem höfum fengið þennan sjaldgæfa sjúkdóm gætum hist og jafnvel boðið fram aðstoð okkar fyrir þá sem fá þennan sjúkdóm til að uppfræða þá og gefa þeim von. Ég man sjálf hversu skrítið það var að liggja lömuð og skilja ekki hvað var að gerast og hvað yrði í framtíðinni. Ég hefði strax orðið vonbetri ef einhver sem hefði fengið þennan sjúkdóm hefði komið gangandi inn og sagt mér sýna sögu. Ég veit að við höfum öll misjafna reynslu og því væri gott að við gætum talað saman um hvað hefði reynst best fyrir hvern og einn. Þeir sem vilja hafa samband við mig geta hringt í síma 893 6804 eða sent mér póst á tofraljos@gmail.com
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:04 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.