Já ég er vakandi ennþá....
28.9.2008 | 02:24
Ég ætti að vera fyrir löngu farinn að sofa, er að fara með drenginn í messu á morgun nema ég geti platað systur hans upp úr rúminu svona árla að sunnudagsmorgni. Svo varð ég að setja inn mynd af fermingadrengum.
Ég er að steypa jóla kerti á fullu og það er gaman skal ég segja ykkur. Ég sit myndir af þeim á morgun hér á bloggið var ekki með myndavélina út með mér í dag. Það er mikið að gera þegar þessi tími er og nú er ég að byrgja upp búðina til að hafa nóg meðan ég fer út til Kúbu. En þá verður dóttlan mín hún Jóhanna verslunastjóri. Hún er dugleg að halda hillum fullum þó líitð sé til. Ótrúlega gaman að vinna með henni,
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Fallegir krakkar sem þú áttGangi þér vel í kertunum
Jónína Dúadóttir, 28.9.2008 kl. 09:16
Hæ hæ.
Er einmitt með logandi á Súkkulaði /Mokka, alveg dásamlegt. Verð að sitja vel á mér með að fara ekki að kveikja strax á jólanammi og fleiru þess háttar. Var að reyna fela þau fyrir mér, en það virkar frekar illa... skil ekkert í því . Kveðja í bæinn.
(IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 16:03
Töfra kertakella- já skemmtilegur kertatíminn sem er ad fara í gang- kannski kem ég vid hjá þér í okt þegar ég heimsæki klakann! Langar til ad sjá allt hjá þér, mín kæra!
heilsur frá Heilla-kerta kellunni í DK
Birna Guðmundsdóttir, 28.9.2008 kl. 16:14
Æ dúllan mín gastu ekki sofnað í gærkveldi. Vonandi gastu átt afslappað sunnudag með tærnar upp í loft þú átt það svo sannarlega skilið syssa mín.
Elska þig syssa mín
Knús og kreist Vibba
Vilborg Auðuns, 28.9.2008 kl. 18:14
Vona að þú njótir vökunóttanna, stundum eru þær góðar ;-)
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.9.2008 kl. 20:03
Birna mín þú er alltaf velkomin hingað, það væri gaman að sjá þig og bera saman bækur,
Takk Jónína, þetta eru myndarkrakkar þó ég segi sjálf frá. Og drengurinn var ótrúlega rólegur í messunni, og söng eins og engill með kórnum (smá útrás þar)
Silla mín, ég er að bæta við fleiri svona sælgætisilmum og ávaxta svo hvenær ætlar að fara að opna aftur SS búðina.. svo þú getir fengið meira að test kertum austur til þín
Já Anna reyndar nýt ég vaka eina og eina nótt, það er stundum gott að fá að vera með sjálfum sér í friði og ró.
Helga Auðunsdóttir, 28.9.2008 kl. 21:36
Litla systir ég elska þig líka og farðu vel með þig stelpa.
Helga Auðunsdóttir, 28.9.2008 kl. 21:37
Halló skemmtileg. Vonandi gast nú sofið í nótt krútta. Gengur ekki að hafa þig vakandi fram á rauðar nætur bara við tölvuna!!!
Ekki vissi ég að Jóhanna væri dóttir þín!! Alltaf lærir maður eitthvað nýtt segi ég nú bara.
Kíki fljótlega á þig Helga mín. Hvenær ferðu annars út?
Tína, 30.9.2008 kl. 06:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.