Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Vá ég er alveg að gleyma mér !
12.7.2007 | 01:51
Nei svo sem ekki, ég hef bara verið að taka mér frí frá að liggja í bloggi, er að reyna að ná mér upp í að fara steypa kerti. En ég get bara ekki staðið lengi á sama stað svo nú er að fara þjálfa sig í því að spenna vöðvana og venja þá við að halda mér uppi. Jamm nóg af því, var í bókhald í dag, en það tók á taugarnar mínar, er ekki voðalega spennt fyrir að fara taka við því aftur.. en koma tímar koma ráð.
Var að hringja í blómabúðir og svoleiðis og ég heyrði á fólki að það væri að vænta þess að ég færi nú að keyra upp kertagerðina, já ég finn fyrir léttum þrýstingi að fara koma mér af stað :)
En ég gerðist dugleg í kvöld og fékk mér kvöldrúnt og endaði hjá vinkonu minni, og hún sagði mér fréttir sem mér hefði ekki hvarflað að mér... þeir í Bretlandi eru farnir að mæla gasið sem kemur frá kúm, pakka þeim inn og draga svo gasið sem myndast út með sprautu. Það hefur aldrei verið í lagi með Bretann.
Svo náttúrlega fengum við okkur fullt af vatni og vorum mjög andríkar um umhverfismál eftir þennan skammt af fréttum af kúnum, svo lögðumst við í M&M og kaffi.. jamm bara gott :) alltaf að fá sér smá sætt eftir matinn það segja fræðingarnir allavega sumir.
Nú litlu snúllurnar mínar komu hér kl. 8.30 í morgun og ræstu frænda sinn, en hann var ekki sérstaklega glaður við að sjá þau en framúr náðist hann samt. Er ekki búin að jafna sig ennþá en vonandi verður það á morgun, hann er eins og mamman getur verið net úrillur. Svo fengu þessar elskur að fara í pottinn með afa sínum og það var ekkert smá gaman. Nú verður ekki friður, það verður örugglega að kíkja í pottinn oftar en okkur grunar. En það er bara gott að hafa þau með sér, það er þá eitthvað líf í pottinum það er annað en þegar við gömlu hjúin liggjum þarna og látum okkur líða vel og lítill gusugangur.
jæja tími á rúmið, góða nótt og guð geymi ykkur.
Var að skoða gamla brandara og fann þessar
7.7.2007 | 01:20
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
vá þetta er næstum því eins og flytja
6.7.2007 | 16:18
Steini tók uppá því með mínu samþykki að breyta vísa kortunum okkar þannig að ég væri með aukakort á honum. Ok ekkert mál, en nú var þrautargangan að laga boðgreiðslur og annað sem var fast á báðum kortunum okkar. Svo nú erum við búina að sitja með sveittan skallan yfir því að hringja og breyta erum að verða búin en þetta er búið að taka þó nokkra klt. en vel þess virði .
Jóhanna mín er betri en enginn hún tók sig til og skipti á öllum rúmum í húsinu og það var orðið þarft verk, ég næli í stelpurnar til að hjálpa mér við þetta því ég kemst ekki upp í efri skápana til að ná í það sem til þarf svo er jafnvægið ekki alveg komið til að setja sængurnar í verið, en það fer að koma :), Vigga Dís er búin að vera líka dugleg hefur verið að keyra mig í æfingar og annað sem ég hef þurft að fara þegar Steini er upptekinn. Svo hefur hún tekið til hendinni þegar henni hefur orðið um og ó ástandið á heimilinu, við eigum nefnilega rétt á hjálp þessa dagana en hún skilar sér seint því að þeir segja hjá félagsþjónustunni segjast vera vandamálum vegna skorts á mannafli. Er þetta ekki típísk ég að ef ég þarf á einhverju svona á að halda þá koma upp alskonar vandamál.
Nú dagurinn er rétt hálfnaður og ég er bara ósköp róleg yfir lífinu og tilverunni þessa stundina þó ég sé kannski pínulítið að velta mér upp úr fréttum sem ég reyni að láta vera en þessi dómur sem féll í sambandi við nauðgunarmálið er bara hræðilegur, mér finnst vera gefa veiðileyfi á að nauðga. Ef þú berst ekki eins og anskotinn þá er það leyfilegt að nauðga þér. Ég sæi þessa hæstaréttadómar lenda í þessu sama og reyna fá dóm á geranda, ætli það gæti reynst þeim þrautin þyngri að horfast í augu við að gerandinn gengi út og þeir fengju hræðslu hnút í magan bara við að þurfa að fara út ef þeir skildu nú mæta gerandanum sem hefði fengið veiðileyfi á þá. Live is a bitch!
Kannski pára ég eitthvað meira í kvöld, aldrei að vita :)
en bless í bili og hafið þið góðan dag :)
Alltaf í framförum :)
5.7.2007 | 22:26
Var hjá sjúkraþjálfaranum seinni partin og yeeeeha.. ég gat labbað aftur á bak ... varð að hafa fastan punkt en ég gat það :) ég er náttúrlega bara snillingur. Ætla út í kertagerð á morgun og sjá hvað ég get :) aldrei að vita nema ég nái að gera kerti og kannski farið að setja nýtt á síðuna mína.
Ég fyllist alltaf fídómskrafti í hausnum þegar ég get eitthvað meir en í síðustu viku. Hausinn á mér er að springa af hugmyndum svo ég verð að fara gera eitthvað annars hætti ég að sofa fyrir hugmyndum.
Annars hefur dagurinn verið rólegur lítið um gesti, Jóhanna hefur verið hjá vinum sínum í dag hér á Selfossi svo ég hef ekki séð hana mikið nema í morgun þegar hún vaknaði. Svo ég hef saknað hennar í dag en hvað um það best að fara ganga frá fram í eldhúsi og sjá hvort ég nenni að glápa á sjónvarpið með Steina. Alla vegana bíð ég ykkur góða nótt og dreymi ykkur vel :)
Bara eitt og annað sem á daga mína hefur drifið
4.7.2007 | 21:47
Í gær að vanda fór ég í sjúkraþjálfun, ég hjólaði mínar 10 mín svo kom Baldur minn einni og sanni og spurði mig hvort ég ætlaði að vera allan daginn að þessu.. Ég stóð upp og hann bendir á útidyrahurðina og segir af stað. Við gengum þó nokkurn spotta og kjöftuðum saman, þetta var ósköp notalegt að lalla þetta. Fékk að glima við smá torfærur, en ég hafði vald á fótunum að misstíga mig ekki. Rosalega var ég samt þreytt eftir þetta.
Kom heim og var að undirbúa mig undir að fá mér smá lúr þegar þessi yndislega fjölskylda mætti á svæðið, ég get ekkiannað en verið stolt af þessari stelpu, hún ólst upp í sama húsi og ég bjó í fyrstu árin sem ég var í sambúð og hún var mikill heimagangur hjá mér og mér finnst ég eiga svo mikið í henni. Hún er mikil hestakona er alin upp á hestbaki, gæti sagt sögur af henni en geri það ekki hérna. Hún á þennan peyja og litla stóra skottu. Svo ekkert varð úr lúrnum enda tímir maður ekki að missa af því þegar hún kemur, hefu einstakan húmor sem hittir beint í mark á þessu heimili.
Ég geng mikið berfætt þessa dagana, til að fá tilfinningu fyrir þeim efnum sem koma við fæturnar á mér, en t.d parketið hér gæti allt eins verið málaður steinn finn engan mun, svo þegar ég stíg á þessar örfáu mottur sem eru hér heima er eins og ég sé að ganga á vírum, ekki þægilegt en samt geri ég þetta til að finna missmuninn á efnum. Geri þetta enn með hendurnar, er ekki komin með fulla tilfinningu fyrir efnum í þeim.
Svo þegar ég var að fara leggja mig þá mætti Eiki vinur okkar á móturhjóli og Steini varð að fá að taka í það, jamm ég sá Steina verða svona fullan af einhverjum krafti sem ég hafði ekki séð áður enda hefur hann ekki stigið á hjól síðan við kynntumst. Þeir sátu og sögðu hvor öðrum sögur af mótorhjólum og bílatengdum málum svo ég fór loksins og lagði mig en þá var kl, orðin 7 svolítið seint á mínum mælikvarða en varð að gera það.
Svo kom elskulega dúllan mín hún Sjohanna heim en hún er í sumarfríi og ætlar að vera síðustu dagana hérna hjá okkur, sem okkur finnst voðalega gott að fá hana heim þó það sé bara stutt stop. Hún hefur verið að nota tíma til að kíkja á tannsa og annað
sem hún hefur þurft að gera hér á Selfossi. Mér finnst það voða þægilegt að hafa hana hér hún gerir allt sem hún sér að þarf að gera án þess að ég þurfi að biðja um það. Finn hvað ég sakna þess að hafa alla krakkana heima þegar hún kemur. Það vantar þessa aksjón sem fylgir stóru heimili.
Miðvikudagar eru frídagar hjá mér, þá fer ég ekki í æfingar og slaka vel á, þannig að ég er aðalega að leggja kapal í tölvunni, hef alveg verið húkkt á því síðan ég kom heim frá Reykjalundi, hef alltaf tekið svona syrpu af þessari maníu en ég get sitið klst. saman og bara lagt og lagt, en ég spila Vegas svo ég er oft að tapa verulega stórum upphæðum, en ég reyni að vinna þær aftur En ég svaf fram að hádegi enginn var að trufla þann svefn, svo er ég bara búin að hafa það gott gekk frá smá þvotti með hjálp frá Jóhönnu minni svo núna er ekkert sem liggur fyrir þangað til á morgun.
Jæja best að fara gera sig klára fyrir 10 fréttirnar því það á kom eitthvað frá fundinum á Selfossi um miðjuskipulagið.
Af matarmálum!
1.7.2007 | 20:57
Já svona geta hlutirnir komið aftan að manni. Ég ákvað að reyna að plata oní drengina smá grænmeti (spínati ) og hélt að ég hefði kyrfilega falið það í matnum sem ég bar á borð, en þegar Steini hafði tekið vænan skammt á diskinn sinn sá ég að þetta hafði hræðilega misheppnast, græn slumma skall á disknum hjá honum og vitið menn kjötið hafði hlaupið í felur, já svona fer fyrir svona tilraunaeldamennsku. Þeir feðgar reyndu að láta sem ekkert væri og svo gat Steini ekki setið á sér lengur og sagði:" hvað er þetta GRAS!" úpps, þarna kom það sem ég hafði óttast þegar græna sletta hafði læðist (dottið) á diskinn hans. Við reyndum að koma þessu niður en grasbragðið var svo yfirgnæfandi að við gáfumst öll upp.
En Ýmir varð glaður og sér fram á góðan dag á morgun laus við þurrfóðrið.
Einn góður frá Írlandi
1.7.2007 | 14:29
That won him the top prize at the pub for the best toast of the night!
He went home and told his wife, Mary, "I won the prize for the Best toast of the night" She said, "Aye, did ye now. And what was your toast?" John said,
"Here's to spending the rest of me life, sitting in church beside me wife."

"Oh, that is very nice indeed, John!" Mary said.
The next day, Mary ran into one of John's drinking buddies on the street corner.
The man chuckled leeringly and said, "John won the prize the other night at the pub with a toast about you, Mary."
She said, "Aye, he told me, and I was a bit surprised myself. You know, he's only been there twice in the last four years. Once he fell asleep, and the other time I had to pull him by the ears to make him come."
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Að skrifa um fréttir og fréttatengt efni
1.7.2007 | 13:59

Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Að vakna ....
1.7.2007 | 13:01
Já það var laugardagsmorgun ég hafði verið að horfa á bíómynd fram eftir nóttu og var frekar þreytt, enda er þetta eini morguninn sem ég leyfi mér að sofa út svo það var bara pirrandi þegar ég heyrði suð sem magnaðist og svo dró úr því, ég kíkti á klukkuna og hún var bara 11.
Ég ákvað að berja mig niður aftur en hvað gerist suðið verður heldur háværar og nú er það fyrir utan herbergisgluggann minn, halló þetta er laugardagsmorgun og ég ætlaði mér að sofa út, ég þýt upp úr rúminu og arka fram, og aumingja Steini fær ræðuna um helv... sláttuvélina í næsta garði. Steini lítur á klukkuna og á mig og segir : Helga klukkan er næstum því tólf, hægan æsing. Það sljákkaði aðeins í mér en samt var pirringurinn til staðar og mátti lítið segja við mig. Ég var eins og snúin hundur þar til ég náði mér í smá blund seinni partinn. Þá fór sólin að skína aftur í mínu geði.
En hér eftir nota ég eyrnatappa ef nágrannarnir skyldu fara að slá snemma á laugardagsmorgni
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æfingar á æfingar ofan
25.6.2007 | 10:51
Ég er á leið í æfingar á þessum morgni og er kannski ekki allt of hress en þetta er víst mín líftaug og verð ég að halda áfram hvað sem tautar og raular, reyndar var síðasta vika ekki skemmtileg því fæturnir bólgnuð svo upp að það var vont að ganga og ég sat meira og minna upp í loft með þær og komst því ekki í æfingar eins og ég ætlaði mér. Stundum spyr ég mig hvað á þessi sjúkdómur að kenna mér, ég hef enn ekki fengið neitt raun svar við þessari spurningu. En alla veganna þá hef ég fundið að ef ég fer ekki í æfingar fer mér að vissu marki aftur þó fólk sjáið það kannski ekki sem umgengst mig, en ég finn fyrir meiri stirðleika og andlega hliðin verður veikari því mér finnst ég vera svíkja sjálfan mig. Þolinmæði er stór hluti af því að fá GBS og það er eitthvað sem ég hef samt lært á þessu að ég stekk ekki fullfrísk einn morgun fram úr, en þetta er endalaus vinna og stundum gjöful og stundum er bara ekkert að gerast, stundum nokkur skref aftur á bak. Nú nálgast það að ég hef verið að berjast við GBS í 8 mánuði og finnst að nú ætti þessu að linna, ég hef ekki enn fengið leyfi til að keyra, en löngunin til að gera það er að verða sterkari og sterkari, ég held ég geti það þó aðrir haldi annað :) eins og eiginmaður minn, enda sér hann fram á að geta ekki haldið utan um að ég fari mér ekki að voða í búðum :)
Búin í æfingunum þær voru ekki erfiðar í dag en ég fékk rafstuð á fæturna og nú er ég bara dofin en ekki með stöðuga verki vildi óska að ég gæti haft svona græju hér heima þegar ég er sem verst í fótunum, þetta léttir svo á.
Kannski kemst ég út í kertagerð og get gert eitthvað þar þó það verði ekki mikið til að byrja með.
Jæja best að láta þessa hugrenninga duga í dag.
Vinir og fjölskylda | Breytt 27.6.2007 kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)