Hvaða hvað...

Ég sem var búin að ákveða með sjálfri mér að stjórnmál væru útaf borðinu hjá mér þetta árið. Hef nóg um annað að hugsa. Já mér gengur vel á Reykjalundi og er farin að æfa að standa kyrr, það er rosalega erfitt að standa og t.d klóra sér í höfðinu á sama tíma, en þetta kemur allt saman í rólegheitum, (sem ég er ekki mikið fyrir). En ég má ekki vera frek og ætlast til of mikils, lífið er yndislegt og ég hef lært svo margt á þessum tíma frá því ég lamaðist. Ég er þakklát fyrir hvert lítið skref sem ég tek fram á við.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband