Hver verður mín saga ???
20.9.2007 | 13:39
ég fór á Lansann í gær að hitta þá frægu magaskurðameistara. og ég er komin í prógramm hjá þeim stúlkum á Lansanum. þ.e. hitta næringarfræðing og vigtun á tveggja vikna fresti. Nú gengur þetta upp hjá mér er búin að bíða eftir þessu síðan ég veiktist að geta klárað prógrammið sem ég var í þá. Var komin með skurðardag en of seint ég komst ekki lá víst flöt uppá Borgó.
Öll þessi skelfingar umræða sem spannst út af blaðagreininni í gær, var bara til að setja glott á feisið á mér. Ég hef verið að spjalla við fólk sem hefur verið í svipaðri stöðu og ég, farið í þessa aðgerð og þeim líður vel, hamingjan er ekki með í þessum pakka hjá meisturunum, hún er eitthvað sem þú skapar þér sjálfur. Og ég komst í gegnum þetta ár án þess að leggjast á hliðina og segja mig úr samskiptum við menn og mýs. Svo það getur ekki annað en farið upp á við í þessum málum sérstaklega ef ég næ af mér mínum aukakílóum þá get ég kannski bara farið að dansa.. og það er sko ekki slæmt.
Athugasemdir
Til hamingju
Gangi þér vel
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 22.9.2007 kl. 10:36
Takk Ása, það verður draumur fyrir sárar fæturnar mínar :)
Helga Auðunsdóttir, 22.9.2007 kl. 10:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.