Færsluflokkur: Bloggar

Hmm já jólin nálgast

Gunna: Mikið voru blessuð jólin frábær. Fékk þvílíkt flottar gjafir og frábæran mat. En þú Fjóla mín var ekki allt eins og best var á kosið ?????? Fjóla: Ja Gunna mín, þetta var nú ekki alveg eins og best hefið verið. Nú klukkurnar hringdu inn jólin og ég var komin í mitt fínasta púss og gargaði á liðið að fá sér að borða. Nú allir ruddust að borðinu og gerðu sér að góðu jólamatinn, nema þegar ég var á fullu sving að fá mér "væna flís af feitum sauð", heyrðist í Palla mínum, "Heyrðu Fjóla mín, viltu ekki fara smá varlega í matinn, þú lítur orðið út eins og heybindivél í vextinum". Ég bara fékk flog, en hélt þó haus og var ekkert að æsa mig. Svo þegar búið var að opna pakkana og allir farnir að lúlla þá vildi nú Palli minn fá sitt!!!! Ég snéri mér og horfði fast í augun á honum og sagði; "ELSKU PALLI ÞÚ SKALT NÚ EKKI HALDA AÐ ÉG RÆSI HEILA HEYBYNDIVÉL FYRIR EITT LÍTIÐ STRÁ"

Guts and Balls - The Medical Distinction


     
We've all heard about people having guts or balls. But do you really know the difference between them? In an effort to keep you informed, the definition for each is listed below...
 
GUTS- is arriving home late after a night out with the guys, being met by your wife with a broom, and having the guts to ask: "Are you still cleaning, or are you flying somewhere?"
 
BALLS - is coming home late after a night out with the guys, smelling of perfume and beer, lipstick on your collar, slapping your wife on the butt and having the balls to say: "You're next."
 
I hope this clears up any confusion on the definitions. Medically speaking, there is no difference in the outcome since both ultimately result in death.

Af göngutúr og öðru skemmtilegu

 

Nú ég skrapp í smá göngutúr út í náttúruna, og hvað það var yndislegt að finna ilminn af berjalyngi og hrossapuntinum, tína peningagras.  Setjast á stein til að hvíla sig. Ég fann hvað ég sakanað þess að búa ekki lengur í sveit, þar sem þetta var bara hluti af tilverunni. Ég var svo sem ekki fljót í ferðum þar sem ég staulaðist á hækjum yfir grjót og þúfur,  ég þakkaði bara fyrir að enginn var myndavélin með í för til að mynda gamalmennið sem þarna var á ferð. Ýmir minn var með mér og þótti honum ég vera full lengi að koma mér aftur að bílnum þannig að hann fór og baðaði sig í næstu skurðum, hann fékk að vera úti það sem eftirlifði daginn, hann var leirugur upp fyrir haus og ég bara nennti ekki að fara að baða hann enda færi ég fyrr í bað en hann svo mikið er víst. Hann er einn að þessum hundum sem eru ekki mikið fyrir að skreppa undir sturtuhausinn.

Við hjónin höfum verið frekar róleg þessa dagana en erum smá að lifna við, enda erum við alltaf að og erum að ná að taka til í húsinu þið vitið hvernig þetta er þegar konan skreppur í burtu í nokkra mánuði. Svona þarf aðeins að taka til hendi í skápum og þess háttar smá munum.

Sjúkraþjálfarinn er kominn úr sumarfríi svo ég er komin á fullt aftur í þjálfun, vá það var gott að fá hann Baldur minn aftur, hann er svo stór partur af prógramminu að þegar hann fer í frí er eins og mig vanti ja bendi puttann, og ég verð eins og höfuðlaus her þegar mig vantar hvatninguna frá honum. Hann er búin að fylgja mér eftir í nokkur ár og þekkir mig allvel og veit hvar skórinn kreppir. Svo er þessi elska að fara til Englands að sjá leikinn minn, við erum sem betur fer áhangendur á sama liði svo ekki fara tímarnir í að rífast um boltann.

Jæja nóg af þessu bulli í bili og vonandi eigið þið góða helgi, ég ætla svo sannarlega að njóta hennar.


GBS

Getting Better Slowly

Guillain-Barré is horrid.
It makes me feel sad.
It makes me frustrated,
when days are really bad.

The hospital has helped me.
All the staff are very kind.
I felt really grumpy
but they did not mind.

 I am glad to be much better.
I am very happy to walk.
I am pleased to see my friends
and it always helps to talk.

I am a lucky boy.
I feel as happy as can be.
Guillain-Barré is horrid
but it makes me ME!

                                                                        by Finlay Ryan (8)

Þegar ég sá þetta ljóð þá lýsti það nákvæmlega hvernig mér líður í dag. Ég grumpy old lady í dag. Sú lífsreynsla sem ég hef gengið í gegn um síðustu daga hefur gert það að verkum að mér hefur versnað, og sársaukin við að ganga er ólýsanlegur. En lífið heldur áfram og vonandi á ég góða daga fyrir höndum í þessari baráttu við lífið og tilveruna.


Töfraljós opna aftur

jæja ef allt gengur að óskum þá ætti ég að geta opnað búðina mína í næstu viku. Ég hef verið að hella í kerti af og til eftir því sem heilsan leyfir, og svo fékk ég hanna Vigdísi mína til að pakka með mér, ég gerði helling af reykelsum og þau verða tilbúin í sölu í næstu viku.  Vonandi verð ég þá líka tilbúin með síðuna mína, Allt að gerast á stuttum tíma.

Frumskógur bíla og önnur mál

Já eins og sjá má á blogginu hans Steina míns þá erum við komin á splunkunýjan bíl. Ég sagði við hann í fyrra haust að hann fengi gull litaðan bíl á næsta ári, hann hló bara að mér, en vitið menn hann er kominn á einn rosaflottan. Við erum búin að vera að rúnta um í dag svona milli verka og þetta er algjör draumur að sitja í þessum eðalvagni. Ég segi ekki að sá ameríski er sá ameríski, og ef ég ætti að velja alveg á milli þá veldi ég frekar þennan frá USA.

carpark

Við erum búin að sitja yfir auglýsingum og meira af auglýsingum, ég var sat að segja alveg að fá upp í kok að innbyrgja allar þessar tölur og nöfnin, hvernig kemst einhver heilvita maður í gegnum þennan frumskóg óskaddaður. Bílarnir sem eru til á bílasölunum, og í blöðunum, það hljóta vera til bíll á hvern einasta landsmann ef ekki meir. Því svo er nóg af þessum faratækjum á götunni, og fólk undrar sig á að vegakerfið sé hrunið.

 

 

Ég man þegar pabbi fékk fyrsta bílinn sem við áttum en það var Moskowitch og keyptur hjá B&L og hann var bara notaður spari, moskvitch13

pabbi hélt áfram að taka strætó í vinnu og ég labbaði í skólann. (var ekki búin að átta mig á að ég var að kaupa minn fyrsta hjá B&L 30 og eitthvað árum seinna) Já hann er breytur þessi heimur í dag, það er að segja ég hef aldrei keyrt börnin mín í skólann og fengið bágt fyrir, allir hinir foreldrarnir gera það ! er setning sem hefur glumið í mínum eyrum síðan ég veit ekki hvenær, en ég hef haldið þetta út og lokað eyrunum. Steini segir að ég hafi sérstakt lag á að loka þeim þegar mér sýnist svo. Látið hann útskýra það Halo ég hef nefnilega ekki orðið var við þennan eiginleika.

Ég ætlaði að skrifa heilan helling hér en hef ekki haft tíma til þess svo þessi færsla birtist núna.

 


Hér gerðist margt um helgina

sumt gott annað ekki.

Á laugardeginum var haldið upp á afmæli yngsta barnsins en hann varð 12 ára, ég er vissum að ég hef einhverstaðar hlaupið yfir eitt eða fleiri ár, mér finnst svo stutt síðan hann fæddist. Hann pantaði lambahrygg að hætti mömmu og öll systkini sín í mat, svo var pöntuð stór ísterta úr Kjörís í eftirrétt, svo hann fengi nú einhverja köku, mömmunni fannst það "must"

afmaeli_kollisiggihér er svo drengurinn með kökuna góðu. Þessi elska það er sonurinn ekki kakan, var í útilegu með systir sinni henni Vigdísi og þar gekk allt að óskum. Sonur hennar er frekar harður af sér og datt í hug að á kvöldvökunni sem var haldin á laugardagskvöldið, (sko þau fóru aftur í útileguna ( þetta var ættarmót tengdasonar míns)) að slökkva á stjörnuljósi með puttunum, einhver sá til hans og ætlaði að stökkva til en þá sá hin sami að drengurinn gretti sig og laumaði hendinni í vasann. Svo fannst honum ómögulegt að standa bara og horfa á varðeldinn svo hann tók hjólið sitt og hjólaði upp í nálæga kletta. Úpps þar datt hann og kom niður á tjaldstæði og hélt um magann, jú hann sagðist hafa tjónað sig aðeins við að detta, en hristi þetta svo af sér. Einhver nálægur heyriði þetta og spurði drenginn varstu að gera hvað? Danni boy svaraði að hann væri sko tjónaður hér og hér og hér...  frændfólkinu hans fannst þetta frekar fyndið en afi hans hefur verið að ala hann upp á því að hann meiði sig ekki heldur sé hann tjónaður og drengurinn er alveg til í það enda er hann járnkall að eðlisfari.

utilegufolkidSvo leið nú kvöldið hjá okkur og allir fór til síns heima nema yngsta dóttirin fékk þá flugu í hausinn að skreppa á Klaustur kl. 10 um kvöldið en það var s.s í lagi nema hún þurfti að fá bíl hjá okkur lánaðan. Hún og kærastinn lögðu svo upp í þetta ferðalag. Og þau náðu Klaustri og hittu vini sína þar en n.b hún þurfti að mæta í vinnu á sunnudeginum, svo undir morgun var lagt af stað á Selfoss. Um 7 á sunnudagsmorgninum hringir síminn, við litum undrandi á hvort annað og Steini svaraði, það var þá tengdasonurinn og spurði hvort hægt væri að sækja hann og konuna en þau væru rétt utan við Vík og lögreglan myndi keyra með þau á móti. Steini spurði hvort bíllinn hefði gefið upp öndina, nei.. sko hann sko fór nokkrar veltur, en sem betur fer slösuðust þau ekkert en bíllinn er gjörónýtur. Já svona geta dagar endað, en ég var mikið fegin þegar þau komu heim og sá að þau voru bara stíf og stirð og með smá kúlu á hausnum.

Svo ekki var pallurinn kláraður því kærasti dóttur minnar er smiðurinn, já það er margt í henni veröld sem getur breyst á örskotsstundu

 


Ég er léleg að skrifa hér

enda er ég að vinna að megastórri uppfærslu á síðunni minni og það er sko ekki nein smá vinna, datt í hug að gera þetta víst ég væri léleg í kertagerðinni, þá væri fínt að vera búin að þessu fyrir haustið.

Og það er sko meira enn að segja það að uppfæra síður í nýtt útlit, það er skárra að smíða þær frá grunni :)

En hér er smá af palla smíðinni:

Það er smíðað Þeir eru búnir að vera duglegir í þessari lotu drengirnir enda ekki hægt annað í veðurblíðunni þessa daganna.                                                  Vá verður þetta pallur með tímanum


Míns hefur verið lélega að skrifa...

Ég hef verið að berjast við að mæta í mína tíma hjá honum Baldri mínum en hann er sko sjúkraþjálfarinn minn, en það hefur gengið misvel að vakna á morgnana enda er ég bý ég með B- manni og held að ég geti bæði vaknað snemma og farið að sofa seint. Er ekki alveg að ganga upp hjá mér enda verð ég að fara að taka á þessum svefnmálum því fyrr því betra.

Ég var að setja inn nýtt myndband sem mér fannst yndislegt vonandi finnst ykkur það líka, það var vinur minn sem er með GBS eins og ég sendi mér þetta og myndir teknar frá Nýja Sjálandi 034

076

 

 

 

 

 

Já það sést í ísjaka þar frá landi, dálítið skrítið að sjá þessar myndir frá andfætlingum okkar.

En hvað um það ég ætla að henda mér niður í bælið mitt og draga upp fyrir höfuð, er orðin úrvinda enda nýkomin heim úr sjúkraþjálfuninni.

 

 


Sko mig..

náði að steypa Fresíu kerti í morgun, allt græna teinu hennar Sollu grænu að þakka.. full af orku ennþá, meira segja búin að kaupa spess prentara á netinu alla leið frá Ástralíu Wink  segi ykkur frá honum seinna.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband